Innskráningar kubbur

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

"Bambus"bátsferð til Yangshuo

22. mars 2010 klukkan 12:35

Yangshuo er sætur staður sem þið ættuð að heimsækja!

Kíkið á hann hér!
Þorgerður Anna Björnsdóttir
Engin athugasemd

Hjólabrettavíddjó úr Ferðalaginu

20. mars 2010 klukkan 10:10


Þetta stutta skeitvíddjó er tekið upp í ferðalaginu okkar. Mest af þessu er frá Nanning í Kína og Hué í Víetnam. Auðvitað filmaði Anna þetta og lagið heitir Silfurhani.
Davíð Hólm Júlíusson
Engin athugasemd

Myndir frá Guilin og Yao-þorpinu

14. mars 2010 klukkan 14:52

Tími kominn á fyrsta skammt af myndum úr ferðinni okkar. Þær eru frá því við fórum til borgarinnar Guilin og þorps í nálægu fjalli að skoða hrísgrjónaakra og þorpsbúa. Í þorpinu búa 400 manns af Yao þjóðarbrotinu sem er eitt af mörgum þjóðarbrotum í Kína. Það lá ekki vegur upp að þorpinu fyrr en 2002 og þorpsbúar eru mjög íhaldssamir um margt en hafa rafmagn, farsíma og strigaskó. Þorpið er nánast sjálfbært þar sem þau rækta allan þann mat sem þau þurfa og framleiða flest fötin.

Kíkið á myndirnar hér!
Þorgerður Anna Björnsdóttir
2 athugasemdir

Hliðvörðurinn í Guilin

08. mars 2010 klukkan 16:50
Við hittum mjög skemmtilegan mann á ferðalaginu okkar. Hann heitir Zhao og er hliðvörður hjá Wada hostel í Guilin. Hann var mjög ánægður að fá félagsskap frá okkur enda hangir hann einn í skúr alla nóttina eða daginn (vaktavinna). Hann smíðar hljóðfæri sem hann selur og er mjög flinkur að spila á þau líka.

Hann bauðst til að kenna okkur eitt stutt lag. Eftir nokkra klukkutíma gátum við spilað það í gegn, kannski ekki meistaralega vel, en allavega í  gegnum allt lagið. Lagið sem við lærðum er frá Innri Mongólíu. Lagið sem hann spilar fyrst í fyrra videoinu er hans eigið lag sem fjallar um frosk. Ég og Anna erum alltaf með það á heilanum enda mjög gott lag hér á ferð.




Davíð Hólm Júlíusson
2 athugasemdir

Friðsæll sunnudagur

07. mars 2010 klukkan 15:35
Á sunnudagsmorgnum sæki ég launin sem ég fæ greidd fyrir að kenna á leikskólanum. Seinustu daga hefur verið mjög kalt, þrumuveður um nætur og meir að segja snjór um helgina. Þegar ég fór út í morgun blasti við mér heiður himinn og sól! Það er einmitt á svona augnablikum sem að veðrið getur komið manni í ótrúlega gott skap. Ég sótti launin, fékk mér götupönnuköku og rölti af stað heim.
Á heimleiðinni sá ég fólk hópast um tilkynningu á ljósastaur með myndum af 3 einstaklingum. Ég varð forvitin og fór að spyrjast fyrir.

Anna: Hvað er að þeim?

Kínverji: Þau xxxx xxxx peningar xxxx fara burt.

Anna: Eru þau þjófar?

Kínverji: Já, rétt! Xxxxx xxxx.

Anna: Í alvöru? Ussussuss vont fólk.

Kínverji: Já (bendir á konuna sína) hún er líka þjófur, hahah!

Anna: Haha..hehemm..

Þetta er í fyrsta sinn sem ég sé plagat með eftirlýstu fólki. Svona eins og í villta vestrinu. Maður sá á myndunum að þau voru ekkert sérstaklega hress. Hafið engar áhyggur, ég mun passa mig á þeim! 
Þorgerður Anna Björnsdóttir
2 athugasemdir